Mér virðist sem ég hafi verið full svartsýn hérna í síðustu færslu þar sem ég sagði enga von vera til komu vorsins. Ég hafði bersýnilega rangt fyrir mér í þeim efnum og tek ég það því allt til baka og renni sennilegast við í Blómaval og kaupi mér eins og eina litla gróðursetningarskóflu og poka af vorlaukum. Það ætlar víst allt að vera í stíl þessa páskana og það er yndislegt. Yndisleg þessi birta sem blossar upp innra með manni og maður áttar sig á þungleika vetraris, þá finnur maður hvað lífið er þakkarvert og mikil gjöf. Hljóðin í umhverfinu eru orðin önnur og það heyrist einhver kunnulegur hljómur sem vekur með manni eftirvæntingu eftir upprisu náttúrunnar, lyktar af brumi og blómum, hvin í laufi og hlýja vinda. Ís og kámugar hendur á litlum krílum, gúmmílykt af sundkútum og söndugar tær. Í stað stjarnanna birtist okkur sólin sem umvefur okkur geislum sínum. Sumarið er yndislegur tími.
Í gær fóru fram kosningar til stjórnar félags guðfræðinema og ég verð að segja að ég er mjög ánægð með niðurstöðu þess aðalfundar. Stolt gekk ég frá borði, því Guðmundur frændi minn var kosinn formaður félagsins. Ég er svo stolt af þessum frænda mínum, mér finnst hann ekki bara stórglæsilegur(svona eins og gengur og gerist í fjölskyldunni náttúrulega) heldur er hann einstaklega vel gefinn og sérstaklega vel að máli farinn. Ég hlakka svo sannarlega til að fá að heyra hann flytja ræður í prédikunarstólnum í framtíðinni. Hann er alveg sérstakur og ég er svo þakklát fyrir að hafa kynnst honum og ég veit að það verða fleiri í framtíðinni. Hann hefur alveg sérstakanærveru og innsýn inn í lífið og hann mun koma til með að verða mörgum mikill styrkur á erfiðum stundum jafnt sem gleðigjafi á góðum stundum.
Ég þakka þér Guð fyrir allt sem ég á, ég þakka þér fyrir lífið sem þú hefur gefið mér og litlu lífin sem þú veittir okkur, gleðigjafana og prakkarana yndislegu. Ég þakka þér fyrir hverja árstíð sem þú gefur mér að fá að upplifa og njóta og fyrir hverja þá árstíð sem nú liðin er. Vaktu yfir mér, börnum mínum,fjölskyldu, tengdafjölskyldu og vinum. Vertu með okkur á gleðistundum og vertu okkur styrkur á þeim erfiðu. Blessaðu heimili mitt og vaktu yfir kirkju þinni og leiddu hana í helgihaldi páskahátíðarinnar þegar við minnumst þeirrar gjafar sem þú gafst okkur, hins nýja sáttmála vonar og upprisu. Þess bið ég í Jesú nafni. Amen.
19. mars 2008 klukkan 11:33
Erla Björk Jónsdóttir 3 athugasemdir
Páskarnir eru á næsta leiti og ekkert bólar á vorinu.Mér sýnist sem svo að umhverfið úti ætli ekki að vera í stil við páskaskrautið sem mun prýða stofuna mína í ár þ.e. páskaliljur,túlipana og brumandi birkigreinar. hvað þá skrautið sem mun prýða greinarnar s.s. krúttlegar kanínurmeð skóflu í hönd tilbúnar í vorverkin og plöntun vorlauka. mér virðist fremur sem það þurfi nú eitthvert veglegra verkfærið en litla skóflu til þess nú í frosthörkunni.en yndisleg er þó tilhugsunin um útsprungna vorlauka og bráðnandi snjóinn undir sólbjörtum himni. nú eru páskarnir svo snemma að það þýðir lítt að vonast eftir slíku strax. maður verður bara að láta sér nægja þá vissu sem páskarnir bera með sér og birtist okkur nógu skjótt í náttúrunni þegar vorsins verður vart, upprisan og sigurinn. vöknun úr dvala vetrarins.
Já það er spurning með þessa vöknun, ég held mér væri það hagstæðast sjálfri að fara að vakna undan þessum vetri og fara að hespa af verkefnum og ritgerðum. mér væri það hollast að fara að tileinka mér stef upprisunnar og sigra þessi verkefni mín, það er mér varla ofviða, enda ekki um að ræða slíka þrekraun sem Kristur gekk í gegnum, þó svo að maður ímndi sér það stundum.
Spurning eftir þetta bloggleysi hér undanfarið hvort bloggskrif fari að festast við hátíðsdaga og því sennilegast að næsta bloggfærsla birtist á hvítasunnunni, og þá spurning hvort sigurinn sé í höfn og okkur birtist greinargerð um "gjöf Heilags anda" sem er yfirskrift ritgerðar minnar í Postulasögunni þessa önnina. Sjáum til!!
Lifið heil.
10. mars 2008 klukkan 16:57
Erla Björk Jónsdóttir Engin athugasemd
Ég er í dag að fara mína þriðju ferð í Vatnaskóg með krakka úr kirkjustarfinu í vetur. Þær ferðir sem ég hef farið hafa reynst ákaflega skemmtilegar og vel heppnaðar, enda frábærir krakkar með í för. Ég vænti þess að ferðin sem við erum að fara í núna verði ákaflega góð ferð en við erum að fara með krakka úr TTT (tíutiltólf) starfinu í Dómkirkjunni og ekki leiðinlegt að hafa Andreu systur með í för.
það er mikið að gera í skólanum eins og vanalega og mín bíða ýmis verkefni og eitt kannski hvað skemmtilegast þ.e. að greina þá guðfræði sem birtist í ljóðum Jónasar Hallgrímssonar og Fjölnismanna. Ég er svo mikil ljóðkona að það má eiginlega segja að þetta sé með fáum skiptum sem ég hlakka til að fara að vinna ritgerð. Postulasagan er skemmtileg og áhugaverð og kúrs sem kallast íslenskt trúarlíf hefur fangað athygli mína mikið í vetur en þar er ég að fara að vinna enn eitt skemmtilegt verkefnið, að taka viðtöl við einstaklinga og reyna að fá út greiningu á því hvernig trúariðkun og trúarhættir og jafnvel hefðir hafa annaðhvort breyst eða haldist í tímana rás. Spennó!!!
Skvísurnar mínar eru alltaf jafn skemmtilegar og sætar.Það er þó óhætt að segja að veturinn hafi verið "veikindaveturinn mikli" því að það er ekkert lát á endalausum pestum hér á bæ, en fer vonandi batnandi með vori og sól í heiði.
Fermingarveisla um helgina:) Hægt að bæta á sig nokkrum kílóum þar....svona eins og mér veiti af því!!! En ég er allavegana byrjuð í sjúkraþjálfun núna og í kjölfarið á svo að taka verulega á því og vera orðin mega skutla næsta vetur.
Sjáumst!!!
07. mars 2008 klukkan 13:33
Erla Björk Jónsdóttir Engin athugasemd
Veit varla hvað ég á að segja hérna, er orðin alveg rosalega lélegur bloggari. Það er nú líka frekar mikið að gera hérna á heimilinu, en ég er að reyna að leggja lokahönd á ritgerðina mína og byrja á annarri, ég veit nú varla orðið meira leiðinlegt en að skrifa ritgerðir, væri eiginlega bara til í að lesa fyrir próf og klára þau af, þessar ritgerðir taka alltaf svo langan tíma. En þó tvennt gott sem hefur gerst í vikunni, ég náði grískuprófinu og fékk sumarvinnu. Ég held ég geti sagt að ég hlakka rosalega til sumarsins í fyrsta skipti í mörg ár, engin vaktavinna og við Þormóður hittumst kannski stundum í sumar, s.s. verðum ekki að vinna vaktir á móti hverju öðru, það verður æðislegt, ég hef einhvernvegin alltaf ráðið mig í vaktavinnu og er orðin rosa þreytt á þannig vinnu, þannig að ég er mjög ánægð með að vera að vinna venjulega dagvinnu í sumar)!!! Ég og Freydís verðum semsagt að vinna saman í sumar, við ætlum að passa litlu pollana á Sólgarði í sumar, ég á Álfalandi og hún á Undralandi, hún verður nú pottþétt góð að hafa stjórn á krílunum þar og örugglega fínn starfsmannastjóri líka Svo tökum við mæðgurnar okkur mánaðarfrí með Auði Rós í júlí og fram yfir verslunarmannahelgi og vinnum svo smá og förum svo til MALLORKA, vá hvað verður æðislegt að vera bara upptekin af hverju öðru í tvær vikur, það er búið að vera svo rosalega mikð að gera hjá okkur í skólanum og vinnu undanfarna mánuði eða já kannski bara undanfarin ár að ég trúi því að við eigum það virkilega skilið að komast í frí og njóta þess að vera fjölskylda og upplifa hvert annað algerlega óstressuð og skapa góðar minningar saman, ekki bara allt þetta stess og tímaleysi sem maður hefur verið að upplifa, þó auðvitað það sé yndislegt að geta verið í námi og eignast börn og stofnað fjölskyldu á sama tíma, það er eitthvað sem ég hef alltaf þakka Guði fyrir og er honum þakklát fyrir að hafa gefið mér, það er ekkert betra en góð fjölskylda, og það erum við svo sannarlega þakklát fyrir, alla þá hjálp sem við höfum fengið til að komast í gegnum þetta, með þeim árangri sem við höfum verið að sýna. Takk allir fyrir það!!!! Það er ómetanlegt að hafa góðan stuðning þegar maður er að reyna að skapa sér og börnum sínum sem besta framtíð. En núna göngum við semsagt fyrir þessu "bensíni" og hlökkum mikið til að fara með stelpunum okkar og geta gefið þeim allan þann tíma sem við viljum.
En svo er komið að húsmæðraorlofi!! Ég er vonandi að fara til Kaupmannahafnar næsta miðvikudag og fram á fimmtudag, s.s. bara sólahringsfrí en samt mjög kærkomið frí. Það verður æðislegt að geta bara farið á kaffihús og út að borða, og smá í HM og SOFA heila nótt!!!! ég á samt pottþétt eftir að vakna á tveggja tíma fresti en get þá samt bara snúið mér á hina hliðina og haldið áfram að hrjóta.
Ég er svo kannski líka að spá í að skella mér á árshátíð guðfræðinema á laugardagskvöldið, það verður örugglega gaman, ég veit að það verða skemmtilegir veislustjórar og skemmtiatriðin örugglega góð þar sem við erum með mjög skapandi listafólk í okkar deild.
jæja ætli það komi ekki önnur skýrsla eftir nokkrar vikur heyrumst þá!!!
14. mars 2007 klukkan 12:09
Erla Björk Jónsdóttir 2 athugasemdir
Þá er fyrsta grískuprófinu lokið. Það var æðislegt að klára það og geta svo farið í klippingu og undirbúið sig fyrir árshátíð lyfjafræðiema. Árshátíðin hófst með glæsilegum fordrykk á skrifstofum Lyf og heilsu þar sem boðið var upp á japanskann og venjulegann mohíto, ásamt breezer og bjór - glæsilegt með endemum-. þaðan var svo haldið á Hótel Sögu þar sem við tók frábær matur, skemmtiatriði og dansleikur fram eftir nóttu. Það var rosalega gaman ég náði að vísu bara að vera fram yfir matinn og skemmtiatriðin en það var líka bara alveg nóg að mínu mati og ég skemmti mér konunglega og hafði það virkilega huggulegt mað Þormóði. Hann fékk svo að dansa sig in í nóttina með vinum sínum og hjúkrunarfræðinemum sem héldu sína árshátíð í salnum við hliðina á okkar. Þetta var virkilega gaman og nú hlakka ég bara til að fara á mína árshátíð, en ég hugsa að ég fari nú bara ein þangað þar sem það er svolítið dýrt að fara bæði á tvær árshátíðar ;0 Þormóður og runar eru að skila stóru riterðinni sinni í dag og eru mjög áægðir með afraksturinn þanig að þetta verður góður dagur og ég ætla að reyna að massa mína ritgerð í kvöld á meðan Þormóður slakar á með stelpunum eftir sína törn.
Ég set inn myndir frá árshátíðinni seinna í vikunni, ég er að bíða eftir fleiri myndum.
06. mars 2007 klukkan 13:19
Erla Björk Jónsdóttir 1 athugasemd
Öskudagur í dag og byrjað að snjóa aftur.....oh ég hélt það væri að koma vor. Auður Rós er hjúkrunarkona í dag, svaka flott í búningnum sínum sem hún svo staðfastlega valdi sér. Freydís Lilja ætlar að vera kanína...ja svona ef hún rífur ekki húfuna mikið af ser..kannski teiknar maður nokkur veiðihár a hana, hún verður að vera flott á öskudagsskemmtuninni í salnum á eftir en stóra systir bíður spennt eftir því það kemur yfirleitt leinigestur og kötturinn sleginn úr tunnunni...rosalega þægilegt að þurfa ekki að fara með þær niðrí bæ í þessu veðri til að syngja...fá bara góða skemmtun og nammi héra heima. Set inn myndir á barnaland í kvöld.
Heyrumst.
21. febrúar 2007 klukkan 14:25
Erla Björk Jónsdóttir 2 athugasemdir
Það er sláandi að hlusta á þessar ömulegu frásagnir sem við hryum frá fórnarlömbum Breiðavíkur vistheimilisins. Mikið ofboðslega getur maðurinn verið grimmur í eðli sínu. Hvar var þetta fólk sem átti að tala máli þessara barna á sínum tíma??? Það hlýtur einhver að hafa vitað af þessu, eða eru allir svona grimmir, eða eru allir bara hræddir???? Þjóðfélagið hefur horft á þessa menn sem aumingja mest alla þeirra ævi, slor og úrætti sem á að hafa í fangelsum ríkisins alla ævi því að þeir séu samfélagi símu hættulegir. Hverkir voru þeim hættulegir og hverjir gerðu þá hættulega?????? Samfélagið ekki satt!!!! Hér er ég að sjálfsögðu að tala eingöngu um þennan hóp manna sem voru vistaðir í þessu hræðilega branafangelsi, pintaðir og misþyrmt kynferðislega. - oj barasta- En svona er þetta oft, fólk sem leiist inn á brautir neyslu og afbrota er oftar en ekki bara góðar sálir sem vita ekki hvernig þær eiga að hegða sér í l´finu því þær þekkja ekkert annað en brot og upplifa þannig eigið skipbrot, þunglyndi, ótta, neyslu til að reyna að fá óttann til að hverfa og hegðun sem þeim hefur verið kennt þ.e. að brjóta á öðrum til að fá það sem þeir vilja.
Ég reyni að setja mig í spor þessarra manna í dag og vil tjá þá hugsun með ljóði:
Þjáningin endist og biðin er löng, en frelsið og gleðin fær aldrei sinn söng. Ranglætið tjáir ei iðrun né sekt, kvölin og hatrið fær hjartað því lekt.
Andinn er tærður og hjartað veikt, sálin og sinnið lífinu feigt. Vonin um bata sér það eitt, að réttlætið fái senn lífinu breytt. EBJ.
Guð blessi þessa menn og gefi þeim réttæti og von. Amen
09. febrúar 2007 klukkan 14:06
Erla Björk Jónsdóttir 2 athugasemdir
Innilega til hamingju með afmælið elsku Kolla. Ég vona að þú hafir átt góðann dag og gott að fá að koma í hrygg til þín í kvöld. Sjáumst hressar á morgun á leiðinni í bústaðinn. Kv.Erla og co
12. janúar 2007 klukkan 07:07
Erla Björk Jónsdóttir 2 athugasemdir
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt það gamla. Það hefur ekki verið mikið bloggað hér að undanförnu, en jólin og áramótin voru mjög skemmtileg og góð og gott að vera í smá fríi og hafa Þormóð pínu heima. Nú er hann byrjaður í skólanum aftur eftir strembna önn en góðann árangur svo það er allt komið á fullt hér á heimilinu. Ég er að skrifa á fullu og vonast til að geta skilað núna í lok mánaðarins...sendið mér góðar hugsanir svo allt gangi nú vel. Stelpurnar stækka og dafna, litla prinsessan er farin að strúka mömmu sinni og segja aaaaaaa. Hún er algjör skotta þessi litla manneskja og stóra systir er á fullu í vinunum, hér eru stundum þrjú börn í heimsókn í einu og fjörið eftir því, en það er nú bara gaman, það er ekkert smá gaman held ég að fá að alast upp á svona stað eins og hérna þar sem eru krakkar í hverri íbúð og alltaf einhver til að leika við bæði úti og inni. Við erum einhvernvegin líka farin að þekkja svo mikið af foreldrum hérna að það er ekkert mál að fá krakka í heimsókn eða leifa Auði að fara í heimsókn til þeirra. Nú hefur einn enn einstaklingurinn svo bæst í fjölskylduna, en Katla og Gunni eignuðust prins númer tvö á nýársdag, hann átti nú ekki að fæðast fyrr en 8 jan en hann gat ekki verið meira tilbúinn þessi litli strákur. Við Freydís fórum að heimsækja hann í gær og hann er rosalegt krútt, alveg jafn stór og hún þegar hún fæddist, nema hvað að núna þá trúir maður ekki að hún hafi verið svona lítil hahahaha hún er orðin svo stór núna. Henni fannst hann smá skrítinn og vissi ekki alveg hvernig hún ætti að láta, en svo var hún alveg til í að fá að taka aðeins í hann og segja aaaaaa. En mamma hennar var nú ekki alveg á því. Þau verða góðir vinir eftir fjóra mánuði, þá finnst henni hún örugglega vera orðin svo stór og hann bara litla barnið alveg fjórum mánuðum yngri hehe. Inga eignaðist líka son á þorláksmessu og við stelpurnar skelltum okkur í heimsókn til þeirra á laugardaginn og höfðum smá pakkaskipti hehe en sá strákur er rosalega lítill ekki nema 12 merkur og 50 cm, vá hvað hann er lítill og mikið krútt ég þorði hreinlega ekki að halda á honum mér fannst hann svo brothættur. Hann hefur fengið nafnið Lúkas Ari. Fyndið en þau eru einmitt svona stelpufjölskylda eins og hjá okkur þannig að drengurinn var meira en velkominn( þó hann hefði að sjálfsögðu verið jafn velkomin ef hann hefði verið stelpa), enda hefur ekki fæðst drengur inn í stórfjölskylduna í fimmtán ár. Jæja ekki memira slúður í dag. bæjó
10. janúar 2007 klukkan 16:46
Erla Björk Jónsdóttir Engin athugasemd